Skilmálar


Leigutími:


1. Leigutíminn er ótímabundinn og leigutaki þarf að segja leigunni upp í gegnum netfang á info@taktuskrefin.is

2. Þegar leigu hefur verið sagt upp kemur starfsmaður frá Taktu Skrefin innan 3 daga að sækja æfingatækið nema um annað sé samið.

3. Taktu Skrefin rukkar 6.000 krónur fyrir að sækja æfingatækið þegar leigunni hefur verið sagt upp sé heimilisfang leigutaka á höfuðborgarsvæðinu. Sé heimilisfang leigutaka utan höfuðborgarsvæðins þá rukkar Taktu Skrefin 182 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra.

4. Leigutíminn er ótímabundinn og leigutaki þarf að segja leigu upp fyrir 10. hvers mánaðar í gegnum info@taktuskrefin.is annars þarf að greiða fyrir viðkomandi mánuð.


Fyrirkomulag leigu:

 

1. Þegar pantað er í gegnum síðuna okkar þarf að greiða fyrsta mánuðinn. Í kjölfar þess fær leigutaki rukkun í heimabanka þar sem greitt er mánaðarlegt gjald.

2. Ef leigutaki býr fyrir utan höfuðborgarsvæðið þá rukkar Taktu Skrefin 182 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra.

3. Ef leigutaki skuldbindir sig í þrjá mánuði og býr á höfuðborgarsvæðinu þá er innifalin frí heimsending og uppsetning.

4. Ef leigutaki kýs að skuldbinda sig ekki í þrjá mánuði þá rukkar Taktu Skrefin 7.500 krónur fyrir uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu.

5. Eftir að leigutaki pantar göngubrettið hjá Taktu Skrefin verður reynt eftir bestu getu að afhenda tækið næsta virka dag.

6. Ef leigutaki skilar ekki tæki á réttum tíma eftir uppsögn verður rukkaður auka mánuður af leigu á viðkomandi tæki.

  

Tryggingar/Ábyrgð:

 

Allur texti og verð á heimasíðu Taktu skrefin eru birt með fyrirvara um breytingar.

1. Áhætta og ábyrgð á leigðum æfingatækjum færist yfir á leigutaka þegar æfingatækið hefur verið afhent á þeim stað sem leigutaki skráði þegar bókun var framkvæmd.

2. Eftir að ábyrgð á æfingatæki hefur færst yfir á leigutaka þá er viðkomandi ábyrgur fyrir öllu tjóni og því ef tækið glatast.

3. Þegar leigutíma hefur verið lokið þarf að skila göngubrettinu hreinu. Greiða þarf Þrifgjald uppá 8.500 krónur ef hreinlæti göngubrettisins er ábótavant.

 

6. Innheimta og vanskil

6.1. Taktu Skrefin er heimilt að innheimta mánaðargjald sjálfvirkt af skráðu korti á gjalddaga.

6.2. Berist greiðsla ekki á gjalddaga áskilur Taktu Skrefin sér rétt til að stöðva notkun, sækja vöru og innheimta kostnað sem af því hlýst.

7. Persónuupplýsingar og kortaöryggi

7.1. Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslumiðlun viðurkennds þjónustuaðila; Taktu Skrefin geymir ekki kortanúmer á eigin kerfum.

7.2. Vinnsla persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu Taktu Skrefin og gildandi lögum.

8. Forföll, óviðráðanleg atvik (force majeure)

8.1. Taktu Skrefin ber ekki ábyrgð á töfum eða vanefndum sem rekja má til atvika sem eru utan áhrifa fyrirtækisins (t.d. náttúruhamfarir, verkföll, truflanir í flutningum).

9. Breytingar á skilmálum og verði

9.1. Allur texti og verð á heimasíðu Taktu Skrefin eru birt með fyrirvara um breytingar.

9.2. Breytingar taka gildi við birtingu á vefnum og gilda ekki afturvirkt um þegar greiddar tímabilsleigur nema annað sé lögbundið.

10. Lög og varnarþing

10.1. Um samning þennan gilda íslensk lög.

10.2. Mál sem rísa kunna vegna hans skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í lögheimili Taktu Skrefin, nema lög mæli fyrir á annan veg.